The Green Hotel
Vefsíða hótels
Gott fjögurra stjörnu hótel á allra besta stað í Dublin. Hótelið er í fallegri og sjarmerandi byggingu við Stephen´s Green almenningsgarðinn í hjarta borgarinnar. Örstutt er að göngu- og verslunargötunni Grafton Street.
Flottur bar og góður veitingastaður með fallegu bókasafni.
Herbergi eru 90 og öll innréttuð í mismunandi litum. Þau eru með síma, sjónvarpi, nettengingu, öryggishólfi, síma, hárþurrku, te- og kaffisetti.