fbpx Holiday Inn Express & Suites Lisbon - Principe Real | Vita

Holiday Inn Express & Suites Lisbon - Príncipe Real
3 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Í hjarta Lissabon, á rólegum og fallegum stað milli hinna glæsilegu hverfa Príncipe Real og Amoreiras, stendur Holiday Inn Express & Suites – hótel sem sameinar nútímaleg þægindi og portúgalskan sjarma. Aðeins í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Marquês de Pombal og hinni líflegu Avenida da Liberdade, er þetta hótel staðsett, stutt er í þjónustu, verslanir, veitingastaði og bari. 

Hótelið býður upp á hlýlegt andrúmsloft og stílhreina hönnun og var allt tekið í gegn árið 2025. Bar og veitingastaður er á hótelinu og þar er borið fram morgunverðarhlaðborð. Einnig er lítil líkamsræktarstaða og frítt þráðlaust internet. Aðeins þrjár mínútur eru í hinn sögufræga sporvagn 28, sem flytur gesti í gegnum sögufræga hverfi eins og Alfama, Graça og Baixa.

Herbergin eru björt og vel búin, með sjónvarpi, skrifborði með USB tengjum, espresso-kaffivél og aðstöðu til að útbúa te. Baðherbergin eru með sturtu og vönduðum snyrtivörum, og öll herbergi eru með loftkælingu. 

Aðstaða

  • Setustofa
  • Þráðlaust net
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Líkamsrækt

Vistarverur

  • Te- eða kaffiaðstaða
  • Loftkæling
  • Sjónvarp
  • Sturta
  • Baðvörur

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun