fbpx Turim Lisboa | Vita

Turim Lisboa Hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Turim Lisboa Hotel er fallegt 4 stjörnu hótel staðsett á milli Saldanha og Picoas, í um 10-15 mín göngufjarlægð frá Avenida Liberdade. Verslanir og veitingastaðir eru allt um kring og verslunarmiðstöð er í stuttri göngufjarlægð frá hótelinu. Hótelið er í nútímalegum stíl með stóra gestamóttöku og bar þar sem einnig er hægt að sitja úti. Á hótelinu er veitingastaður með morgunverðarhlaðborði. Á þaki hótelsins er "rooftop" bar, sólbaðsaðstaða og lítil sundlaug.

Herbergin eru 56 talsins og mjög rúmgóð og snyrtileg, innréttuð í hlýlegum litum. Þau eru öll með loftkælingu, katli, sjónvarpi og minibar. Frítt þráðlaust internet er um allt hótelið.

 

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Lyfta
  • Þakbar
  • Þaksundlaug
  • Sólbaðsaðstaða

Vistarverur

  • Herbergi
  • Minibar
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Te- eða kaffiaðstaða

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun