Hotel der Waldhof, Zell am See
Vefsíða hótels
Fjögurra stjörnu fjölskyldurekið hótel staðsett í skíðabænum Zell am See og í stutt frá er skíðakláfurinn Schmittenhöhe.
Á hótelinu er góð aðstaða eins og móttaka opin allan sólarhinginn, bar, líkamsræktaraðstaða, barnaleikherbergi og einstaklega flott heilsulind þar sem m.a. má finna innisundlaug, sauna og hvíldarherbergi. Á hótelinu er í boði hálft fæði (morgunmatur og kvöldmatur) og er matur reiddur fram af hlaðborði þar sem er lögð er áhersla á hágæða hráefni.
Öll herbergi eru búin nútímaþægindum eins og sjónvarpi, minibar, svölum og fullbúnu baðherbergi með hárþurrku.
Miðbær Zell am See er í um 500 metra fjarlægð. Þar má finna veitingastaði, aprez-ski bari, verslanir og fleira.Skíðabrekkurnar eru svo allt um kring. Fyrir gönguskíðafólk eru 200 kílómetrar af gönguskíðabrautum. Hægt er kaupa skíðapassa „ski alpen card“ sem gefur aðgang að meira en 400 km. af brekkum og um 120 skíðalyftum. Rétt hjá má svo finna skíðabæinn Kaprun en þar er jökullinn Kitzsteinhorn og er þar hæsti tindur 3200 metra hár. Á fáum stöðum í Austurríki getur þú treyst því betur að nægur snjór þeki skíðabrekkurnar í vetrarfríinu þínu. Það skíðasvæði er einnig innifalið í skíðapassanum.
Vert er að taka fram að það er ekki fararstjóri á svæðinu en hægt er að hafa samband við Icelandair VITA ef eitthvað kemur upp á. Ekki eru í boði akstur til og frá flugvelli en hægt er að sérpanta það gegn aukagjaldi.
Ferðamannaskatturinn í Austurríki er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 100 km
- Veitingastaðir: Í miðbænum
- Frá miðbæ: 500 metrar
Aðstaða
- Þráðlaust net
- Herbergi
- Gestamóttaka
- Barnaleiksvæði
- Bar
- Upphituð skíðageymsla
- Veitingastaður
- Heilsulind
- Sundlaug
- Gufubað
- Líkamsrækt
Vistarverur
- Hárþurrka
- Minibar
- Verönd/svalir
- Sjónvarp
- Öryggishólf
Fæði
- Hálft fæði