Las Palmas er dásamleg borg og iðandi af mannlífi. Veitingastaðir, barir, klúbbar, verslunarmiðstöðvar og ströndin allt í góðu göngufæri.
Las Palmas, höfuðborg Gran Canaria er ótrúleg náttúruundur. Stórbrotin náttúrufegurð Gran Canaria er nægilega góð ástæða fyrir því að þú ættir að heimsækja Las Palmas. Þéttbýlisströndin Playa de las Canteras er um 40 km löng og útivistarævintýri aldrei langt undan.
Flogið með Icelandair
Láttu þér líða vel og njóttu afþreyingar og frábærrar þjónustu Icelandair alla leið til Las Palmas og aftur á leiðinni heim.
Las Palmas er dásamleg borg og iðandi af mannlífi. Veitingastaðir, barir, klúbbar, verslunarmiðstöðvar og ströndin allt í góðu göngufæri.
Las Palmas, höfuðborg Gran Canaria er ótrúleg náttúruundur. Stórbrotin náttúrufegurð Gran Canaria er nægilega góð ástæða fyrir því að þú ættir að heimsækja Las Palmas. Þéttbýlisströndin Playa de las Canteras er um 40 km löng og útivistarævintýri aldrei langt undan.
Flogið með Icelandair
Láttu þér líða vel og njóttu afþreyingar og frábærrar þjónustu Icelandair alla leið til Las Palmas og aftur á leiðinni heim.
Gott íbúðarhótel staðsett á frábærum stað í Las Palmas höfuðborg Gran Canaria. Í næsta nágrenni eru úrval verslanna og veitingastaða og er ströndin aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð. Á móti er hótelið Design Plus Bex og geta gestir nýtt sér aðstöðuna þar en á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, bar, veitingasalur og útibar er uppá þaki hótelsins,ásamt sólbaðsaðstöðu og sturtum.
Á Bex Holiday Homes eru 24 íbúðir ýmist með einu eða tveimur svefnherbergjum, allar eru þær fallega hannaðar og búnar helstu þægindum eins og fullbúnu og glæsilegu eldhúsi, ásamt baðherbergi þar sem eru helstu snyrtivörur. Hægt er velja að vera án fæðis eða með morgunmat innifalinn, en morgunverðarsalur er á hótelinu beint á móti Design Plus Bex.
Ath. Það eru hvorki þrif né lín eða handklæðaskipti innifalin, en hægt er að panta gegn aukagjaldi þá þjónustu beint til hótelsins þegar út er komið.
Þetta er spennandi nýr valkostur fyrir þá sem vilja vera útaf fyrir sig og dvelja í Las Palmas. Fararstjórar VITA eru ekki í Las Palmas en hægt er að nálgast þá í þjónustusíma.
Fallega og nútímalega hannað fjögurra stjörnu "boutique" hótel staðsett á frábærum stað í Las Palmas höfuðborg Gran Canaria.
Hótelið hefur allt verið nýlega tekið í gegn og má þar m.a. finna móttöku sem er opin allan sólarhringinn, líkamsræktaraðstöðu, bar og veitingastað þar sem reiddur er fram morgunverður. Upp á þaki hótelsins er glæsilegur bar og er þar hægt að gæða sér á gómsætum réttum og svala þorstanum með ljúffengum drykkjum á meðan horft er yfir borgina. Þarna er einnig sólbaðsaðstaða og sturtur.
Herbergin eru öll fallega hönnuð og hægt er að velja um deluxe herbergi eða superior. Öll eru þau með sjónvarpi, síma, minibar, loftkælingu og öryggishólfi. Baðherbergi eru með sturtu, hárþurrku og helstu snyrtivörum.
Góður kostur fyrir þá sem vilja vera í Las Palmas en þar má finna iðandi mannlíf, fallegar byggingar og þröng stræti, ásamt úrvali verslana og veitingastaða. Falleg og skemmtileg strönd er í Las Palmas en hún heitir Las Canteras og er aðeins í 3 mín. göngufjarlægð frá hótelinu.
Ath.Fararstjórar VITA eru ekki í Las Palmas en hægt er að nálgast þá í þjónustusíma.
HEY!
Fjarlægðir
Miðbær: Rétt hjá
Strönd: 3.mín gangur
Veitingastaðir: Allt um kring
Flugvöllur: 26 km.
Aðstaða
Sturta
Veitingastaður
Bar
Gestamóttaka
Líkamsrækt
Lyfta
Nettenging
Expresso kaffivél: Í superior herbergjum
Aðgengi fyrir fatlaða: Já
Vistarverur
Hraðsuðuketill
Sjónvarp
Öryggishólf
Loftkæling
Minibar
Hárþurrka
Herbergi
Íbúðir/herbergi með aðstöðu fyrir fatlaða: Þarf að sérpanta
Vel staðsett þriggja stjörnu hótel í Las Palmas, aðeins steinsnar frá Las Canteras ströndinni og aðeins í 800 metra fjarlægð frá miðbænum. Allt um kring eru veitingastaðir og verslanir.
Á hótelinu er móttaka opin allan sólarhringinn og upp á þakinu er sólbaðsaðstaða og jacuzzi. Öll herbergin sem samtals eru 71 voru tekin í gegn árið 2019, öll eru þau búin þægindum eins og sjónvarpi,síma, loftkælingu, þráðlausu interneti og fullbúnu baðherbergi þar sem er sturta og hárþurrka.
Í boði eru Standard herbergi sem eru með útsýni yfir götuna og Standard Economy herbergi, í báðum herbergja týpum geta verið allt að einn til tveir einstaklingar.
Góður kostur fyrir þá sem vilja dvelja í höfuðborginni og njóta alls þess sem hún hefur uppá að bjóða
Ath. Fararstjórar VITA eru ekki staðsettir í Las Palmas en hægt er að nálgast þá í þjónustusíma.
Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA