Aðventan á Rín
Sigling og jólamarkaðir
Myndagallerí
Ógleymanleg sigling á aðventu
Jólamarkaðir og sigling á Rín
28. nóvember - 3. desember.
Fararstjóri:
Frankfurt, Köln, Rudesheim, Mainz og Koblens.

Stutt ferðalýsing
Flogið með Icelandair til Frankfurt í morgunflugi þann 28. nóvember og ekið á hótel í Köln þar sem gist verður eina nótt fyrir siglingu. Morgunverður á hótelinu. Upp úr hádegi verður farið með rútu að höfninni þar sem innritað verður um borð í A- Rosa ALEA og siglt af stað um kl 17:00. Komið við í dásamlegum borgum og bæjum sem allir eru rómaðir fyrir jólamarkaði sína. Skipið leggur svo að bryggju í Köln þann 3. desember þar sem morgunverður verður snæddur um borð áður en haldið verður af stað til Frankfurt og þaðan flogið með Icelandair til Keflavíkur klukkan 13:05
Flug:
Flugnúmer | dags | Flugvöllur | kl | Flugvöllur | kl |
---|---|---|---|---|---|
FI520 | 28. nóvember | Keflavík | 07:25 | Frankfurt | 12:05 |
FI521 | 03. desember | Frankfurt | 13:05 | Keflavík | 15:55 |

Siglingaleiðin:
Dagur | Áfangastaður | koma | Brottför |
---|---|---|---|
29. nóvember | Köln, Þýskalandi | 17:00 | |
30. nóvember | Rudesheim, Þýskalandi | 10:00 | 16:00 |
30. nóvember | Mainz, Þýskalandi | 19:00 | 23:59 |
01. desember | Frankfurt/Main, Þýskalandi | 06:00 | |
02. desember | Frankfurt/Main, Þýskalandi | 02:00 | |
02. desember | Siglt fram hjá Lorelay, um morguninn | ||
02. desember | Koblenz, Þýskalandi | 15:00 | 21:30 |
03. desember | Köln, Þýskalandi | 05:00 |
A-Rosa ALEA
A-Rosa ALEA er fljótabátur sem siglir á Rín og er í eigu þýska skipafélagsins A-Rosa. ALEA er 210 m. á lengd og 27,5 m á breidd. Á þessu skipi eru 100 vel búnir klefar, ýmist með glugga eða með svokölluðum Juliette-svölum. Klefarnir eru allir með öryggishólfi, loftkælingu, sjónvarpi og hárblásara, baðherbergin með snyrtivörum og sloppum. Rúmgott sólardekk með sundlaug, gufubaði, púttvelli og stóru taflborði auk annarra leiktækja. Veitingastaðir, hlaðborð, grill, a la carte staður og bar.
Rín
Rín er ein lengsta á í Evrópu og rennur í gegnum alls 10 lönd sem eru fleiri en nokkur önnur á. Meðfram henni má sjá mikið landslag, kastala, rómantísk þorp, líflegar borgir, gamla miðaldabæi, timburhús og nútímalegan arkitektúr.
Eftir að skógarnir sem náðu út í Rínarfljótið voru fjarlægðir, þá hefur Rín liðast rólega áfram næstum alla leið frá upptökum til sjávar. Það er undursamlegt að sigla með fljótabát í nokkra daga og láta jólastressið hverfa. Sigla rólega meðfram kastölum, höllum og klaustrum og að bæjum sem búið er að klæða í jólabúningin. Þar er hægt að skoða og versla auk þess sem gaman er að smakka margs konar nasl eins og bökuð epli og púns undir fallegri tónlist brass bands.

Föstudagurinn 28. nóvember Frankfurt - Köln
Flogið til Frankfurt með Icelandair í morgunflugi kl. 07:25 og lent í Frankfurt um kl.12:05. Þar bíður rúta og ekið er til Kölnar og tekur aksturinn um tvær klukkustundir. Komið á hótel Mercure Severinhof þar sem gist er í eina nótt fyrir siglingu. Örstutt er á jólamarkaðina frá hótelinu.

Laugardagurinn 29. nóvember A-Rosa ALEA
Morgunverður á hótelinu og um miðjan dag er ekið að skipi. A-Rosa ALEA leggur af stað kl. 17:00. Kvöldverður og skemmtun er á skipinu öll kvöld.

Sunnudagurinn 30. nóvember Rüdesheim og Mainz, Þýskalandi
Íbúar Rüdesheim skilgreina stærsta aðdráttarafl borgarinnar, hið heimsfræga Drosselgasse stræti, sem „144 metra af joie de vivre“ eða lífsgleði. Þetta er miðja rómantísku stefnunnar sem varð fjölda skálda og tónlistarmanna að innblæstri, en sem dæmi um það samdi Brahms þriðju sinfóníuna sína á þessum slóðum. Rüdesheim er best þekkti staðurinn á Rheingau svæðinu og þar eru fjölmörg menningarleg kennileiti, glæsilegar byggingar og virki. Það sem fullkomnar svo heimsóknina til borgarinnar og nærsvæðis hennar er bolli af Rüdesheim kaffi sem kemur frá bænum. Jólamarkaðurinn í Rüdesheim gengur undir nafninu Jólamarkaður Þjóðanna eða “Christmas Market of Nations" þar sem er boðið upp á vörur frá yfir 20 þjóðum frá þremur heimsálfum.
Mainz bleibt Mainz (eða ‘Mainz er alltaf Mainz’) er meira en bara máltæki því þessi fullyrðing lýsir hinum afslappaða lífsstíl sem íbúar borgarinnar eru stoltir af. Þetta viðhorf gerir borgina að ánægjulegum viðkomustað fyrir ferðamenn því hér er tekið einstaklega vel á móti nýju fólki. Tvö þúsund ára saga Mainz gerir borgina að einni af elstu borgum Þýskalands og í henni getur þú séð söguna lifna við á hverju götuhorni. Missið ekki af því að heimsækja sögulega jólamarkaðinn á Domplatz. Upplýst og fallega skreytt dómkirkjan mun án efa heilla.

Mánudagurinn 1. desember Frankfurt/Main, Þýskalandi
Frankfurt er fæðingarstaður þýska rithöfundarins Johann Wolfgang von Goethe sem var einnig ljóðskáld, vísindamaður og heimspekingur. Einnig var fyrsti þýski þjóðfundurinn haldinn í Frankfurt/Main árið 1848. Í dag er stórborgin ein mikilvægasta viðskiptamiðstöð Þýskalands þar sem er að finna höfuðstöðvar helstu banka landsins. Borgin er einnig þekkt fyrir mörg framúrstefnuleg háhýsi. Á siglingunni meðfram ánni sjáum við allar þessar stórkostlegu byggingar.
Jólamarkaðurinn þar á sér rætur allt aftur til 14. aldar og er í dag einn sá stærsti og vinsælasti í Þýskalandi. Hann nær yfir stórt svæði í miðbænum — frá Friedrich-Stoltze-Platz til Römerberg — þar sem glæsilegt handverk, heitt glühwein og jólaljós skapa einstaka stemningu. Fullkomið tækifæri til að njóta jólaandans í sögulegu umhverfi.

Þriðjudagurinn 2. desember Frankfurt, Loreley, Koblens, Þýskalandi
Siglt meðfram Loreley klettinum sem er 132m hár og skagar út í Rín. Kletturinn gefur frá sér bergmál og segir sagan að falleg mey hafi kastað sér út í Rín í örvæntingu yfir trúlausum elskuhuga og breyst í sírenu sem leiddi sjómenn til glötunar

Miðvikudagurinn 03. desember Köln, Þýskalandi - Heimferð
Eftir morgunverð á bátnum er farið frá borði þar sem rúta bíður hópsins og ekið sem leið liggur að Frankfurtarflugvelli þaðan sem flogið er heim til Keflavíkur klukkan 13:05 og lent um klukkan 15:55.
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef
FRA
4 klst
Morgunflug
-
Gjaldmiðill
€Evra
Gengi