Hótel Viceroy Ombria
Vefsíða hótels

Viceroy Ombria í Algarve er byggt sem ekta Portúgalskt þorp og saman stendur af 141 herbergjum, svítum og híbýlum á 5 hektara svæði. Viceroy Ombria heiðrar sögu og menningu Portúgals sem sést á allri hönnun og arkítektúr, alls eru 24 byggingar í mismunandi stærðum og gerðum ásamt turni við mjðju lóðarinnar, hönnunin endurspeglar hefðbundið Portúgalskt þorp. Herbergin eru mjög rúmgóð og smekklega innréttuð. Öll herbergi okkar eru Deluxe herbergi.
Veitingarstaðir
Alls eru 6 veitingarstaðir á svæðinu sem notast við afurðir ræktaðar á svæðinu eða í nálægð við Ombria. ATH í okkar ferðum er innifalið hálft fæði, s.s. morgun og kvöldverður á Ombria Kitchen og Casa & Fora stöðunum.
Café Central - sem er staðsett í hjarta þorpsins er bakarí sem býður uppá heimagert Potúgalskt bakkelsi ásamt léttum réttum úr eldofni.
Bellvino - er leiðandi í afurðum frá staðnum og býður uppá mat í sinni einföldustu mynd. Bellvino sérhæfir sig í vínum, ostum, kartöflum og ólífum svo eitthvað sé nefnt.
Ombria Kitchen - mun bjóða uppá mat allan daginn með eldunarstöð og hefbundum Portúgölskum réttum ásamt því að nýta bestu afurðir hvers árstíma.
Solalua - sem þýðir "frá sólu til tunglsins" er staður sem boðið er uppá ofur skapandi og nýstárlega rétti ásamt úrvali af kokteilum í lifandi andrúmslofti
Casa & Fora - er staðsett í klúbbhúsinu með stórri verönd og afslöppuðu andrúmslofti. Casa & Fora mun bjóða uppá rétti dagsins sem og úrval af portúgölskum bjórum.
Salpico - er sundlaugarbarinn og býður uppá ferska, létta rétti tilvaldir á heitum dögum.
Aðstaða
- Þráðlaust net
- Sundlaug
- Sundlaugabar
- Handklæði fyrir hótelgarð
- Gestamóttaka
- Bar
- Veitingastaður
- Heilsulind
- Líkamsrækt
- Gufubað
Vistarverur
- Ísskápur
- Minibar
- Loftkæling
- Te- eða kaffiaðstaða
- Sjónvarp
- Þrif
- Kaffivél
- Þráðlaust net
- Hárþurrka
- Baðsloppar
- Sturta
- Herbergi
- Verönd/svalir
Fæði
- Hálft fæði