fbpx Iberotel Casa del Mar Beach, Hurghada | Vita

Iberotel Casa Del Mar, Hurghada
4 stars

  • pin Created with Sketch.

Elegant og huggulegt fjögurra stjörnu hótel á frábærum stað, miðsvæðis í Hurghada.
Innifalið er aðgangur að dásamlegri einkaströnd. Í garðinum eru góðar sundlaugar með þremur skemmtilegum rennibrautum og barnalaug með minni rennibrautum.

Á Iberotel Casa Del Mar eru 202 herbergi, öll með verönd eða svölum, loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi og te-kaffiaðstöðu. Herbergin eru rúmgóð og björt. Hægt er að óska eftir samtengdum herbergjum fyrir allt að 6 manns.

Veitingastaðirnir eru tveir ásamt bar og sundlaugarbar. Á Panorama veitingastaðnum er hægt að gæða sér á hlaðborði og La Terrace er með létta egypska rétti, pizzur og pasta.

Hótelið er fjölskylduvænt og hentar einnig vel fyrir öll sem vilja slappa af í fallegu umhverfi. Góð heilsulind og líkamsrækt er á svæðinu, leikjaherbergi, skemmtidagskrá og svo er hægt að panta vatnasport eins og siglingu, seglbretti, fallhlífasiglingu, vatnaskíði, köfun eða snorkl.

Iberotel Casa Del Mar er góður kostur fyrir notalega og eftirminnilega dvöl og býður upp á afþreyingu fyrir gesti á öllum aldri.

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Sundlaug
  • Sundlaugabar
  • Barnasundlaug
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt

Vistarverur

  • Herbergi
  • Hraðsuðuketill
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka
  • Baðvörur

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun