Golfsigling til Dubai
Lúxus 14 nátta golfferð til Dubai ásamt 7 daga siglingu um Persaflóa mikið innifalið ásamt 9 golfhringjum
Myndagallerí
Lúxus 14 nátta golfferð til Dubai ásamt 7 daga siglingu um Persaflóa
31. jan til 14. feb 2025!
Fararstjóri: Jón Þór Gylfason
Flogið verður með Icelandair og Emirates til og frá Dubai. Um er að ræða 7 daga siglingu um Dubai, Katar, Abu Dhabi og Oman. Á meðan siglingu stendur verða spilaður golfhringur á hverjum viðkomustað. Eftir siglingu lýkur verða 6 nætur á Hilton Palm hóteli í Dubai ásamt 5 golfhringjum. Samtals er ferðin 14 nætur ásamt 9 golfhringjum á mismunandi golfvöllum.
Hér er dagskrá ferðarinnar (ATH með fyrirvara um breytingar)
31. jan - 16:10 flug til London Heathrow, 22:00 flug frá London Heathrow til Dubai, áætluð koma til Dubai er 08:45 þann 1. febrúar
1. feb - 15:00 innritun í Costa Toscana skipið og frjáls dagur umborð
2.. feb - Golf á Jumeirah Fire Dubai - skipið er í höfn í Dubai
3. feb - 13:00 skipið siglir til Oman - frjáls dagur umborð
4. feb - 09:00 skipið kemur til Oman - Golf á Al Mouj golfvelli - 19:00 skipið siglir frá Oman
5. feb - Skipið siglir til Katar - frjáls dagur umborð
6. feb - Golf á Educational golfvelli - Katar - 16:00 skipið siglir frá Katar
7. feb - 08:00 skipið kemur til Abu Dhabi - Golf á Saadiyat golfvelli - 23:00 skipið siglir frá Abu Dhabi
8. feb - 08:00 skipið kemur til Dubai - Golf á Arabian Ranches golfvelli - akstur á Hilton Palm hótelið
9. feb - Frjáls dagur í Dubai
10. feb - Golf á Dubai Hills golfvelli
11. feb - Golf á Trump International golfvelli
12. feb - Golf á Al Zorah golfvelli
13. feb - Golf á Montgomerie golfvelli
14. feb - 08:00 Akstur frá hóteli til flugvallar - 12:10 flug frá Dubai til London Heathrow, 20:25 flug frá London Heathrow til Keflavíkur. Áætluð koma er 23:40 til Keflavíkur
Haldinn verður kynningarfundur fyrir brottför þar sem verður ítarlega farið yfir allar upplýsingar, dagskrá o.fl.
Dubai golfsigling febrúar 2024
Við systur áttum alveg frábæran tíma með Vita í Golf Siglingu um Persaflóa. Við heimsóttum Dubai, Abu Dhabi, Qatar og Oman sigldum um Persaflóa og spiluðum golf á ótrúlega flottum golfvöllum. Ferðin var vel skipulögð og farastjórinn Jón Þór var mjög góður, það var ekkert sem hann gat ekki fundið lausn á. Þetta var draumaferð hjá okkur báðum og við hefðum líklega ekki farið á þessar slóðir án þess að vera í svona vel skipulagðri ferð þar sem allt var fyrsta flokks. Við mælum eindregið með að golfarar skoði þennan valkost.
- Jóhanna og Jónína Waagfjörð
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef DXB
10
Eftirmiðdagsflug