Albir Playa Hotel
Vefsíða hótels
Albir Playa er staðsett rétt hjá fallegu ströndinni El Albir í huggulegu umhverfi.
Hótelið er mitt á milli listamannabæjarins Altea og hins líflega Benidorm-bæjar. Albir-ströndin er í um 15 min göngufjarlægð og þar er hægt að stinga sér í kristaltæran sjóinn.
Á hótelinu er meðal annars í boði sundlaugar bæði fyrir börn og fullorðna, leikvöllur, tveir veitingastaðir, skemmtidagskrá og fjölbreyttar dekurmeðferðir í glæsilegri heilsulind.
Einnig er barnaklúbbur á svæðinu fyrir 4-12 ára sem starfræktur er frá 15. júní til 15. september.
Heimsókn í Terra Mitica-skemmtigarðinn sem er að finna í næsta nágrenni er skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Fyrir þá sem vilja hreyfa sig þá er mögulegt að leigja reiðhjól í gestamóttöku og njóta þess að hjóla eftir strandlengjunni. Í nágrenninu er einnig að finna flotta golfvelli sem henta byrjendum sem lengra komnum.
Herbergin eru fallega innréttuð, öll með baðkari, loftkælingu og svölum.
Fæði: möguleiki á hálfu fæði ( morgunverður og kvöldverður).
Hótelið er með handklæði til leigu fyrir hótelgesti gegn vægu tryggingargjald sem fæst endurgreitt í lok dvalar ef gestir hafa ekki skilað þeim. Þessi handklæði má bæði nota í garðinum og fara með á ströndina.
Albir Playa Hotel er gott fjögurra stjörnu hótel með góða aðstöðu.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 68 km
- Frá miðbæ: 10-15 mín gangur
- Frá strönd: 1 km
- Veitingastaðir: 200 m
Aðstaða
- Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds á sameiginlegum svæðum og herbergjum
- Barnasundlaug
- Sundlaug
- Líkamsrækt
- Heilsulind
- Gestamóttaka
- Barnaleiksvæði
- Barnadagskrá
- Bar
- Veitingastaður
- Skemmtidagskrá
Vistarverur
- Herbergi
- Minibar
- Loftkæling
- Öryggishólf: Gegn gjaldi 4 evrur á dag
- Sjónvarp
Fæði
- Hálft fæði