fbpx Coral California | Vita

Coral California, Playa del las Americas
4 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Rólegt og þægilegt fjögurra stjörnu íbúðahótel á góðum stað í miðbæ Playa de las Americas syðst á Tenerife. Stúdíóíbúðir með eldhúskróki, setuaðstöðu og öllum helstu þægindum. Afslappað umhverfi og stutt í veitingastaði, verslanir og á ströndina. Eingöngu fyrir 16 ára og eldri.

Coral California er tilvalin gististaður fyrir þá sem vilja skoða áhugaverðustu staðina á þessu fræga ferðamannasvæði á suðurhluta Tenerife. Sundlaugargarðurinn og svæðið allt er gróið og þægilegt og sólbaðsaðstaðan notaleg. Í garðinum er einnig sérstakt slökunarsvæði. Boðið er upp á veglegt morgunverðarhlaðborð og hægt er að fá ýmiskonar snarl á sundlaugarbarnum. Í næsta nágrenni má svo finna fjölda veitingastaða. Á hótelinu er einnig boðið upp á sérstaka aðstöðu fyrir reiðhjólafólk þar sem hægt er geyma, gera við og þrífa hjólin. Hægt er að fá upplýsingar um fjölda reiðhjólaleiða frá hótelinu. Stutt er í alla helstu þjónustu og aðeins örfárra mínútna gangur á ströndina.

Íbúðirnar eru vel búnar stúdíóíbúðir fyrir tvo, innréttaðar á einfaldan en smekklegan máta með parketgólfum, setuaðstöðu með sófa, einkasvölum með húsgögnum og eldhúskróki með öllum helstu tækjum: ísskáp, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist og tveggja hellu eldavél. Að auki er þráðlaust net í boði alls staðar á hótelinu og bílastæði sem gestir geta nýtt endurgjaldslaust.

Coral California býður upp á persónulega gæðaþjónustu og hreinlegt og heimilislegt umhverfi fyrir alla sem vilja slaka á í friði og ró á milli ævintýra í sólinni.

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Sundlaugabar
  • Sundlaug
  • Bar
  • Sundlaug
  • Veitingastaður

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Vifta
  • Eldhúsaðstaða
  • Kaffivél
  • Sturta
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis, Morgunmatur

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun