fbpx Gran Hotel Bahia del Duque Resort | Vita

Gran Hotel Bahía del Duque Resort, Costa Adeje
5 stars

Vefsíða hótels

Sérlega glæsilegt fimm stjörnu lúxushótel við Duque-ströndina á Costa Adeje, byggt í ævintýralegum nýlendustíl og umlukið hitabeltisgörðum. Fjölbreytt og framúrskarandi þjónusta í heillandi umhverfi sem býður upp á öll helstu þægindi og meira til.

Gran Hotel Bahia del Duque er stórt og rótgróið lúxushótel á besta stað á Costa Adeje, alveg við ströndina. Það státar af á fimmta hundrað herbergja af ýmsum stærðum og gerðum auk veglegra smáhýsa þar sem saman fer tímalaus hönnun, gamaldags glamúr og rólegt og þægilegt umhverfi. Á svæðinu eru fimm útisundlaugar, átta veitingastaðir og sjö barir, þar á meðal safabar og strandbar. Einnig er boðið upp á herbergisþjónustu og við smáhýsin má finna einkasundlaugar. Á hótelinu er vel búin líkamsræktarstöð og fyrsta flokks heilsulind sem býður upp á dekur og meðferðir af ýmsu tagi.

Alls kyns afþreying og skemmtanir eru í boði fyrir unga sem aldna, allt frá tennis og gönguferðum til hvalaskoðunarferða. Einnig er stutt á næstu golfvelli og í vatnsrennibrautagarðinn Siam Park.

Herbergin eru notaleg og þægileg með þráðlausu neti, loftkælingu, minibar, öryggishólfum, stórum rúmum og hreinlætis- og snyrtivörum. Stærri svítur og fjölskylduherbergi eru í boði og aðgengi er með besta móti svo allir ættu að finna ógleymanlega gistingu við sitt hæfi.

Á Bahia del Duque er auðvelt að gleyma sér og njóta lífsins listisemda í töfrandi umhverfi innan um hitabeltisplöntur og heiðbláa vatnsfleti, hvort sem ætlunin er að láta líða úr sér í rólegheitum eða skemmta sér með fjölskyldunni.

Aðstaða

  • Sundlaugabar
  • Líkamsrækt
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Barnaleiksvæði
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá
  • Sundlaug

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Minibar
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Þráðlaust net

Fæði

  • Hálft fæði, Morgunmatur

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun