fbpx Mediterranean Palace, vel staðsett. Playa de las América

Mediterranean Palace, Playa de las Américas
4 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Mediterranean Palace er gott og einstaklega vel staðsett hótel. Það er miðsvæðis á Playa de las América og steinsnar frá strönd. Sundlaugargarðurinn er ævintýralegur með 300 fm sundlaug sem er umkringd rómverskum styttum sem tilheyrir Cleopatra Palace og annarri 1.300 fermetra laug en umhverfis hana er geysifínt sólbaðssvæði. 

Hótelið var að fullu endurnýjað 2023-2024 og opnaði aftur 1.júlí 2024

Hótelið er heill heimur útaf fyrir sig með sínum ævintýralegu sundlaugargarði, veitingastöðum, börum og snakkbörum. Aðal veitingastaður hótelsins býður uppá girnilegt hlaðborð alla daga með úrvali af þjóðlegum og alþjóðlegum réttum. Hægt er sitja úti eða inni.

The Palapa Beach Club, við Playa del Camisón,  er notalegur staður við sjóinn. Þar er borinn fram matur á daginn, en á kvöldin breytist staðurinn í stóran bar og mörg kvöld er skemmtidagskrá með lifandi tónlist.

Á hótelinu eru 535 herbergi sem öll voru tekin í gegn 2024 þau eru loftkæld með síma, sjónvarpi, öryggishólfi, hárþurrku og verönd eða svölum. Lítill ísskápur er á öllum herbergjum. Herbergi snúa ýmist yfir garðinn og sundlaugina eða að götu. Þráðlaust net er í herbergjum og sameiginlegu rými. Einnig er hægt að sérpanta aðrar herbergjatýpur eins og t.d. svítur.

Lifandi og líflegt hótel með sundlaugum, barnalaugum og nuddpottum. Þarna er mikið um að vera sem dæmi má nefna að hægt er að fara í mini-golf,  líkamsrækt, þarna er einnig tækjasalur og alls kyns íþróttatímar eins og tai chi og jóga. Hægt er að fá strandhandklæði gegni gjaldi og smá tryggingu sem er endurgreidd þegar handklæðinu er skilað.

Smáverslanir og klúbbar fyrir börn og unglinga. Öll barnaaðstaða til fyrirmyndar.

Líf og fjör fyrir lífsglatt fólk!

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 17 km
  • Frá miðbæ: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Þráðlaust net: Frítt Wi - Fi
  • Sundlaug
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Herbergi: Tvíbýli
  • Minibar: Gegn gjaldi
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunmatur, Hálft fæði, Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun