fbpx Parque Santiago, Playa de la Américas eða Ameríska ströndin, Tenerife

Parque Santiago IV, Playa de las Américas
3 stars

Vefsíða hótels

Parque Santiago IV er gott og eftirsótt íbúðahótel  á líflegum stað við Amerísku ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Alveg við ströndina og svo er örstutt að skreppa í búðir á veitingastaðinn eða hvert annað sem hugurinn leitar. Hinum megin við götuna er svo Parque Santiago III.

Vart er hægt að hugsa sér betri staðsetningu á hóteli. Verslunarhús, minni verslanir, veitingahús, barir og önnur afþreying rétt hjá og hinum megin er ströndin. Þar sem sumar íbúðir hótelsins snúa út að mannlífi aðalgötunnar á Amerísku ströndinni þá verður að gera ráð fyrir því að eitthvert ónæði sé í einhverjum íbúðum.  

Íbúðirnar eru í nokkrum byggingum á Parque Santiago IV sem standa hlið við hlið, hótelið er mjög stórt svo nokkur gangur getur verið frá gestamóttöku að íbúðum. Ekki eru lyftur í öllum byggingum.

Á hótelinu er stór sundlaug og fyrirtaks sólbaðsaðstaða, með sólbekkjum sem ekki þarf að greiða fyrir.Í garðinum er einnig veitingastaður og snarlbar. Þarna er einnig líkamsrækt,  móttaka opin allan sólarhringinn og frí nettenging

Hægt er að velja um stúdíóíbúðir með eða án garðsýn, íbúðir með einu svefnherbergi og stofu með eða án garðsýn eða íbúðir með tveimur svefnherbergjum og stofu. Í öllum herbergjum er eldhúskrókur eða eldhús, stofa, sjónvarp, sími, öryggishólf og svalir. Hægt að leigja örbylgjuofn í gestamóttöku. Vifta er í íbúðunum og er hún staðsett í stofunni en þær eru ekki loftkældar.Íbúðir með tveimur svefnherbergjum eru sumar þannig að annað svefnherbergið er á efri hæð en þá er ekki hurð sem lokar það af frá neðri hæðinni.

Ath. Íbúðir á hótelinu geta verið mismunandi og eru ekki allar innréttaðar eins. Hvorki er hægt að fá fyrirfram staðfest hvernig íbúð maður fær né velja staðsetningu hennar. 

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 19 km
  • Frá miðbæ: Er í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar

Vistarverur

  • Íbúðir
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Sjónvarp

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun