fbpx Princess Inspire Tenerife | Vita

Princess Inspire Tenerife, Costa Adeje
4 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Princess Inspire Tenerife er glæsilegt 4 stjörnu hótel á besta stað á Costa Adeje, í um 150 m fjarlægð frá Fanabe ströndinni. Hótelið er byggt í fornum grískum stíl með háum súlum og allt hið glæsilegasta. Hótelið er einungis fyrir fullorðna og bíður því uppá slökun og tækifæri til að njóta alls þess sem hugurinn girnist. Sundlaugargarðurinn er mjög stór, með 3 sundlaugum og sundlaugarbekkjum. Veitingastaðirnir eru fjórir talsins þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og einnig eru 6 barir á hótelinu. Skemmtidagskrá er í á daginn og kvöldin þar sem boðið er upp á ýmis konar afþreyingu, alt frá íþóttum að lifandi tónlist. Falleg heilsulind er á hótelinu þar sem hægt er að njóta í gufu, sauna, tyrknesku baði og laugum. Einnig er hægt að fá nudd og aðra þjónustu og hárgreiðslustofa er einnig á svæðinu. Fyrir þá sem vilja stunda líkamsrækt á meðan á fríinu stendur, er góð líkamsræktaraðstaða til staðar með öllum helstu tækjum.

Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð. Hægt er að fá tvíbýli með og án sundlaugarsýnis, junior svítur og svítur. Herbergin eru með "walk-in" sturtum. Minibar er á öllum herbergju, ásamt sjónvarpi, katli til að hita kaffi og öryggishólfi. Hárþurrka er á baðherbergjum. Frítt þráðlaust internet er um allt hótelið. "Esencia" þjónustan felur í sér ýmis konar aukaþjónstu: baðslopp og inniskó, val um mismunandi kodda, kaffivél, aðgengi að Escenia sólbaðssvæðinu.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Þráðlaust net
  • Lyfta
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Gufubað

Vistarverur

  • Þráðlaust net
  • Hraðsuðuketill
  • Minibar
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Baðvörur
  • Hárþurrka
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Sturta

Fæði

  • Morgunmatur, Hálft fæði, Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun