Olympus Palace, Salou
Vefsíða hótels
Olympus Palace er fallegt 4 stjörnu hótel, vel staðsett í Salou, um 400 m frá stöndinni. Hótelið hefur nýlega verið uppgert með nútímalegri hönnun. Gestamóttakan er stór og björt. Sundlaugarsvæðið er fallegt með góðum sólbekkjum, sundlaugarbar og sundlaug. Veitingastaðurinn býður upp á morgunverðarhlaðborð, hádegisverð og kvöldverð af hlaðborði. Á þaki hótelsins er bar og "chill out" svæði - Summit.
Herbergin eru stílhrein og í ljósum litum. Þau eru öll með svölum með húsgögnum. Loftkæling, sjónvarp, öryggishólf og minibar er á herbergjum. Baðherbergin eru öll með sturtu, snyrtivörum og hárþurrku.
Aðstaða
- Sundlaugabar
- Gestamóttaka
- Barnasundlaug
- Bar
- Veitingastaður
- Sundlaug
Vistarverur
- Verönd/svalir
- Herbergi
- Hárþurrka
- Minibar
- Loftkæling
- Sjónvarp
- Þráðlaust net
- Öryggishólf
Fæði
- Án fæðis, Morgunmatur, Hálft fæði