Hotel 4R Playa Park
Vefsíða hótels
4R Playa Park er gott 3 stjörnu hótel staðsett í um 100m fjarlægð frá ströndinni og um 400m frá miðbæ Salou. Á hótelinu eru tvær sundlaugar og rúmgóður garður með sólbekkjum og sundlaugarbar. Í garðinum er leiksvæði fyrir börn, miniklúbbur og lítill minigolfvöllur. Veitingastaðurinn býður upp á morgunverðarhlaðborð, hádegisverð og kvöldverð af hlaðborði. Á hótelinu er einnig bar sem býður upp á úrval af drykkjum.
Herbergin eru ágætlega rúmgóð og hægt er að velja á milli herbergja með og án sjávarsýn. Öryggishólf er á herbergjum, lítill ísskápur, ketill fyrir te og kaffi, sjónvarp og loftkæling. Baðherbergin eru með sturtu.
Aðstaða
- Gestamóttaka
- Barnaleiksvæði
- Barnadagskrá
- Bar
- Veitingastaður
- Sundlaugabar
- Barnasundlaug
- Barnaleiksvæði
- Sundlaug
- Þráðlaust net
Vistarverur
- Te- eða kaffiaðstaða
- Herbergi
- Minibar
- Loftkæling
- Öryggishólf
- Sjónvarp
- Sturta
- Hárþurrka
Fæði
- Hálft fæði