Rosamar Hotel, Benidorm
Vefsíða hótels
Gott 3 stjörnu hótel í hjarta Benidorm, skammt frá Levante-ströndinni. Allt sem þarf í næsta nágrenni.
Í öllum herbergjum er sjónvarp, öryggishólf, loftkæling, svalir og þráðlaus nettenging. Hægt er að leigja ísskáp. Athugið að í september gæti verið slökkt á loftkælingunni. Hægt er að fá lánað/an straujárn og hárblásara í afgreiðslu gegn gjaldi sem er endurgreitt við skil.
Sundlaugargarðurinn er stórskemmtilegur, þar er m.a. sundlaug, barnalaug, rennibrautir með árstíðarbundna opnun og leiksvæði fyrir börnin.
Heilsulind með innilaug, nuddpotti, sauna og tyrknesku baði. Einnig líkamsrækt og aðstaða til að leika tennis, borðtennis, biljarð, pílukast og minigolf. Heilsulindin og líkamsræktin er opin þrisvar til fjórum sinnum í viku frá 16:00-19:30. Veitingahús og nokkrir barir, m.a. snarlbar við laugina.
Aðgangur að líkamsræktinni kostar 4 EUR per klukkustund og aðgangur að heilsulind og líkamsrækt kostar 7 EUR per klukkustund.
Í hjarta Benidorm.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 60 km
- Frá miðbæ: 1,5 km
- Frá strönd: 400 m
- Veitingastaðir: 150 m
Aðstaða
- Þráðlaust net: Á sameiginlegum svæðum og á herbergjum gegn gjaldi
- Barnasundlaug
- Sundlaug
- Líkamsrækt
- Heilsulind
- Gestamóttaka
- Barnaleiksvæði
- Bar
- Veitingastaður
Vistarverur
- Herbergi
- Ísskápur
- Loftkæling
- Öryggishólf
- Sjónvarp
- Hárþurrka: Hægt að fá lánað í afgreiðslu gegn gjaldi
Fæði
- Allt innifalið